Forsíða
Velkomin á ventura.hopto.org
Hús með sundlaug og heitum potti á veröndinni til leigu í styttri eða lengri tíma í sólskinsríkinu Florída. Húsið er á Ventura í Orlando og er það verndað svæði við 18 holu golfvöll, þar er einnig að finna golfæfingarsvæði og tennisvöll. Golfskálinn býður upp á mat á góðu verði og þar er stór sundlaug og líkamsrækt. Sótt út á flugvöll, ef óskað er. Nánari upplýsingar er hægt að finna með því að smella hér.
Ný Síða
Nú höfum við sett upp síðu til að anna eftirspurn.
Á síðunni getur þú fundið allt sem þú þarft að vita um húsið og það sem hægt er að gera í Orlando.
- Allt um húsið og það sem í því er
- Myndir af húsinu, innbúi og garði
- Við erum með áhugaverða hlekki um skemmtilega staði í nágrenninu.
- Kort og leiðbeiningar til að auðvelda ykkur lífið, t.d. hverng á að komast frá Orlando Sanford Airport að húsinu
Hafðu endilega samband ef það eru einhverjar spurningar.
Til að hafa samband ferðu í "Hafa samband" hlutann á síðunni.